Risafyrirtæki vestur í Bandaríkjunum, Netflix, gerði þau herfilegu mistök fyrr í haust að breyta nafni fyrirtækisins en gleyma jafnframt að verða sér úti um samsvarandi veffang fyrir heimasíðu sína. Lexían sú að netfyrirtæki sem ekki er með tilheyrandi veffang mun lenda í vandræðum. Sem varð raunin hjá Netflix.
Það kom því ritstjórn Fararheill spánskt fyrir sjónir að rita wow.is og fara rakleiðis á heimasíðu um dásemdir Vatnajökulsþjóðgarðs í stað þess að fara á heimasíðu nýs íslensks flugfélags sem ber nafnið Wow Air.
Er reyndar komin upp heimasíðan wowair.is sem er í vinnslu eins og sakir standa og fátt þar að sjá annað en íslensku með pólsku ívafi samanber „Wið erum að winna í þessu.“ Hins vegar er ljóst að hyggist Wow Air gera strandhögg í Þýskalandi þurfa þeir að kaupa veffangið wowair.de sem er þýsk ljósmyndavinnslustofa.
Fram kemur á vef flugfélagsins að það hyggist kynna áfangastaði sína innan tíðar og fólk geti í kjölfarið bókað ferðir en Wow Air hyggur á fyrsta flug sitt með vorinu 2012.
Ritstjórn Fararheill er á því að flugfélagið gerði vitlausari hluti en eigna sér veffangið wow.is. Þá eru jafnframt uppi efasemdir um nafnið sjálft innan ritstjórnar. Lendi flugfélagið í vandræðum seinna meir afskaplega auðvelt fyrir gagnrýnendur að leika sér með nafnið: wow fyrir dyrum, wowleg tíðindi og svo framvegis.






