Tíðindi

Horfðu á hjólið detta af í flugtaki

  10/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Þeir voru ekki öfundsverðir farþegar breska flugfélagsins Flybe sem fylgdust með þegar eitt hjól vélarinnar féll af við flugtak frá Exeter flugvelli í Bretlandi.

Ómögulegt er að ímynda sér hvað farþegarnir hugsuðu við þær kringumstæður en góðu heilli endaði allt vel því þrátt fyrir hjólamissinn tókst flugstjóranum að lenda vél sinni aftur án þess að slys yrðu á fólki en snúið var við um leið og farþegar gerðu viðvart um atvikið.

Var lendingin hörð og varð flugstjóri að beita ítrustu hæfni við að halda vélinni réttri í lendingu en það tókst án þess að nokkrum yrði meint af að því er fram kom í breskum fjölmiðlum.

Var um innanlandsflug að ræða og vélin af tegundinni Dash 8 en tvær slíkar vélar eru í notkun hjá Flugfélagi Íslands.