Forstjóri Iceland Express, Skarphéðinn Berg Steinarsson, segir tilkomu breska lágfargjaldaflugfélagsins easyJet á flugmarkað hérlendis ekki breyta miklu fyrir sitt fyrirtæki.
Í samtali við vb.is segir Skarphéðinn mest hissa á hversu fáar ferðir easyJet hyggst bjóða milli Keflavíkur og London. Aðeins þrjár ferðir verði farnar í viku hverri en sjálfur hafi hann búist við meiri samkeppni en það. Þá bendir hann á að auðvelt sé að halda úti flugi á sumrin en óvíst er hvort easyJet býður ferðir lengur en fram í september.
Hefur forstjórinn ekki séð ástæðu til að svara bréfi ritstjórnar Fararheill.is þar sem meðal annars forvitnast um hvort og þá hvernig Iceland Express hygðist bregðast við mun lægri fargjöldum hjá easyJet.
Bjóðast Íslendingum fargjöld með því félagi frá 4.700 og upp í tólf þúsund meðan Iceland Express er að bjóða sömu ferðir á tæpar nítján þúsund krónur í júlí sé dæmi tekið af vef ferðasalans.






