Gjafabréfin kallast ekki lengur gjafabréf heldur jólapakkar. Sem hljómar auðvitað mun betur frá markaðslegu sjónarmiði. Miklu gæjalegra að gefa „jólapakka“ en „jólagjafabréf.“ Það breytir ekki því að jólapakkar Icelandair þetta árið eru ekki merkilegar gjafir.

Flottari vélar en ekki batna jólapakkarnir? Mynd Woodys Aeroimages

Flottari vélar en ekki batna jólapakkarnir? Mynd Woodys Aeroimages

Lítið hefur breyst milli ára varðandi „jólapakka“ þessa risafyrirtækis sem er nú með fleiri starfsmenn að telja peninga en þeir hafa að þjónusta viðskiptavini.

Eins og við sögðum frá í fyrra og hitteðfyrrra og árið þar áður og árið þar áður eru takmarkanir á jólapökkunum með eindæmum eins og sjá má hér.

Svo má ekki gleyma að nokkrum dögum eftir jól 2014 bauð Icelandair betra tilboð en fékkst með jólagjafabréfi. Tilboð sem þeir sem jólapakkana fengu gátu ekki nýtt sér eins og lesa má um hér.

Þessu tengt vert að hafa í huga að jólapakkatilboð Icelandair nú eru svona gróflega þau sömu og þau hafa verið frá árinu 2010. En árið 2010 barðist flugfélagið í bökkum en syndir nú í seðlum eins og Jóakim Aðalönd. Ennþá er flugfélagið að krefja okkur um þúsundir króna fyrir eldsneytisgjald þó eldsneytisverð hafi verið í lágmarki í eitt og hálft ár.

Látum ekki bjóða okkur þetta. Fullt af samkeppnisaðilum að bjóða betur dags daglega en Icelandair með sína jólapakka. Hvers vegna að borga meira?