Margt má segja um Skúla Mogensen, forstjóra og eiganda Wow Air. Það er hins vegar ekki hægt að saka hann um lélegan húmor.

Vigdís not hress og Skúli öllu hressari. Mynd Wow Air

Vigdís not hress og Skúli öllu hressari. Mynd Wow Air

Skúli óskaði fundar með heldur lágvirtum fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni, og enn lágvirtari formanni fjárlaganefndar, Vigdísi Hauksdóttur, og gaf þeim báðum „verðbólgueyðandi smyrsl“ eins og markaðsmenn kalla það.

Þar var Skúli, góðlátlega, að minna ríkisplebba á að eyða ekki peningum í sjálfkrafa viðskipti við Icelandair. Fararheill tekur heils hugar undir það.

Skúli ætti reyndar að ganga lengra og lögsækja ríkið. Ríkisstarfsmenn í efri lögum hafa nefninlega haft það æði gott þau skipti sem ferðalög erlendis eru nauðsyn. Sem er æði oft. Saga Class hjá Icelandair plús frítt áfengi svo ekki sé minnst á að vildarpunktar opinberra starfsmanna færast á reikning þess sem ferðast.

Það aftur þýðir að hótelgisting fæst á lágu verði gegn vildarpunktum plús að hægt er að kaupa flott hálsmen um borð og svona sextíu bjóra ef fólk er í stuði. Erindrekar ríkisins þannig að koma konum sínum á óvart með ferðum og flottheitum á kostnað okkar sem þurfum að þræla 24/7 á launum sem duga ekki fyrir ferð til Vestmannaeyja í sumarfríinu.

Þannig á forstjóri ÁTVR nú átta hundruð flugferðir ókeypis gegnum Icelandair. Þess vegna ferðast forstjóri Isavía um eins og enginn sé morgundagurinn og býður kerlu með svona þegar hann nennir. Allt frítt og flott á fyrsta farrými.

Wow Air er þannig í raun að ítreka að ríkið eigi ekki viðskipti við Icelandair. Svona dálítið eins og Fararheill hefur ítrekað við lesendur að eiga ekki viðskipti við Icelandair. Við auðvitað langt á undan Skúla í þessu sem öðru.

Einhver kann að hnussa. Icelandair er jú eins og Eimskip, óskabarn þjóðarinnar.

Nema hvorugt fyrirtæki á það skilið. Bæði fyrirtæki hafa troðið á neytendum frá aldaöðli og gera enn. Er Icelandair ekki ennþá að hækka fargjald sitt um 8000 krónur sem „eldsneytisgjald“ þrátt fyrir að þotueldsneyti hafi ekki verið lægra síðan Gunnar á Hlíðarenda sagði að hlíðin væri fögur.

Við erum bara þrjú hundruð þúsund alls. Smáþjóð þar sem allir eru skyldir öllum. Hvers vegna ættum við að gefa ríkistarfssmönnum feita launauppbót sem leyfir þeim og fjölskyldum að ferðast og njóta lífsins. Hvers vegna eiga fáir útvaldir að ferðast á okkar vegum og græða helling á því líka?

Það er það sem Skúli Mogensen er að mótmæla með verðbólgukremi sínu. Auðvitað hefur hann hagsmuna að gæta, hann er jú að reyna að flytja viðskiptin yfir til sín, en hann hefur líka rétt fyrir sér. Ríkisfyrirtækjum ber skylda til að fara vel með fjármuni almennings. Þeim fjármunum er illa varið í ferðir með Icelandair.