Ef þú skyldir ekki vera að gera neitt sérstakt í aprílmánuði og átt 130 þúsund kall til að eyða í þig er hægt að gera marga verri hluti en koma sér fyrir á ágætu hóteli á hinni frægu Amalfi-strönd á Ítalíu í tvær vikur með bílaleigubíl til umráða. Allt heila klabbið fyrir 130 þúsund kall. Sem er brandari.

Ekki amalegt í Amalfi í aprílmánuði. Mynd Amalfi Tourism

Ekki amalegt í Amalfi í aprílmánuði. Mynd Amalfi Tourism

En brandaraverðið er raunverulegt. Það er sannarlega tveggja vikna túr á flottu þriggja stjörnu hóteli í Amalfi með bílaleigutík allan tímann í boði þessa stundina. Amalfi er ekki nema einn fallegasti staður Ítalíu eins og allir sem þangað hafa komið geta staðfest.

Þú hefur þó ekki tímann fyrir þér í þessu tilfelli. Aðeins tæpar átta klukkustundir til að negla þetta eðalfína tilboð ferðamiðilsins Travelbird í Danmörku. Hér innifalið flugið frá Köben eða Billund og tveggja vikna pakkinn niður í 106 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.

Ofan á það þarf að henda flugi til og frá Íslandi og þar erum við í góðum málum. Wow Air flýgur til Danaveldis og allan aprílmánuð finnst þar flug báðar leiðir niður í 20 þúsund krónur á mann.

Sameinum þetta tvennt og tvær afskaplega ljúfar aprílvikur á Ítalíu eru okkar fyrir 130 þúsund á mann eða 260 þúsund á par.

Nánar um ferðina hér.