Það er ekkert óeðlilegt við að langa til Dúbai við Persaflóann. Það er jú ekkert lítið sem þar hefur verið gert til að freista ferðamanna og ekki er neinn skortur á sól og indælu veðri.

Ekki erfitt að hrífast af peningabrjálæðinu hér í borg.

Ekki erfitt að hrífast af peningabrjálæðinu hér í borg.

Risaflugfélagið Emirates er næstu daga að bjóða sértilboð á fargjöldum beint til Dúbai frá nokkrum breskum borgum. Frá Heathrow kostar flug fram og aftur nú niður í 69 þúsund krónur miðað við gengi dagsins en hægt er að fljúga alla mánuði fram til júní.

Það sem gerir tilboð Emirates extra spennandi er að nú má finna hræbillegar ferðir héðan til London næstu mánuðina til dæmis með Wow Air allt niður í tæpar sautján til átján þúsund krónur fram og aftur. Með því að rúlla þessum tveimur tilboðum í eina sæng er því hægt að dúlla sér á ströndum Dúbai næstu mánuði fyrir 90 þúsund krónur á mann.

Ekkert slæmt við það og engar áhyggjur af því þó hér vanti þak yfir höfuð meðan dvalist er í Dúbai. Á hótelbókunarvél okkar er að finna mörg frábær gistitilboð.

Tilboð Emirates hér.