Menn eru brattir hjá Wow Air þessi dægrin. Þar á að taka hlutina með trompi eins og tilkynning flugfélagsins um áætlunarflug til Bristol næsta sumar ber með sér.
Sú frétt var hvorki meira né minna en sú sjötta í röð tilkynninga um fleiri ferðir til fleiri áfangastaða en nú er. Síðustu vikurnar hefur Wow Air tilkynnt um flug til Los Angeles, San Francisco, Toronto, Montreal, Kanarí og nú Bristol í viðbót við þær leiðir sem verið hafa í boði.
Það verður að viðurkennast að þetta er magnaður vöxtur á örskömmum tíma. Reyndar kannski fullmagnaður. Wow Air er jú lítið annað en Skúli Mogensen og jafnvel hann á ekki ótakmarkaða seðla í erlendum bönkum. Það má ekki mikið bregða út af þegar svo hart er keyrt.
Á hinn bóginn er ekkert sem bendir til annars en djörfung geti skilað djúpum ávinningi. Kalda Ísland er brennheitur áfangastaður, sífellt fleiri eru að ferðast og vegur lággjaldaflugfélaga vex statt og stöðugt á kostnað hefðbundinna flugfélaga. Það má reyndar fullyrða að nánast öll aukning í ferðum fólks frá aldamótum megi að stærstum hluta þakka lággjaldaflugfélögum heimsins. Án þeirra væri lítill vöxtur í flugbransanum.
Fararheill setur þó spurningarmerki við Bristol. Ekki vegna þess að við séum neinir sérfræðingar eða vegna þess að Bristol og nágrenni sé ekki heimsóknar virði. Heldur vegna þess að easyJet, sem flogið hefur milli Bristol og Keflavíkur um skeið er að hætta. Samkvæmt vef easyJet lýkur ferðum þess á milli þann 12. apríl næstkomandi.
EasyJet hefur ekki orðið vinsælasta og arðbærasta lággjaldaflugfélag Evrópu fyrir ekki neitt. Þeir slátra miskunnarlaust þeim leiðum sínum sem ekki skila tekjum eða lágmarksfjölda farþega.
Opinber tilkynning þessa efnis hefur ekki borist en miðað við stöðuna nú er easyJet að pakka saman til Bristol. Og ef þeim tekst ekki að mala gull á þeirri leið hvernig ætlar Wow Air að fara að?








