Klukkan 15.22 kom skeyti í pósthólfið þess efnis að Heimsferðir væru að bjóða síðustu sætin á flugi til Alicante í júlí á sérstöku tilboðsverði eða niður í 12.900 krónur aðra leiðina. Gott mál en kannski fullmikið tekið upp í sig.
Við höfum áður tæpt á þessu. Hvers vegna að ýkja hlutina þegar þeir eru sallafínir fyrir?
Það gerir ferðaskrifstofan í pósti sínum þar sem auglýst er „ótrúlegt verð á allra síðustu sætunum til og frá Alicante í júlí. Verðið er jú ágætt en ekki ótrúlegt. Wow Air hefur verið að bjóða svipað undanfarna sólarhringa. Svo kemur hvergi fram hvort farangur er meðferðis eða hvort greitt er sérstaklega fyrir það.
Verst að á vef Heimsferða er þetta verð á flugi aðeins að finna á einni dagsetningu þann 8. júlí. Flug á öðrum dagsetningum kostar meira. Svo telur Fararheill það ekki vera „ótrúlegt tilboð“ að greiða 35.900 krónur fyrir flugið heim frá Alicante.
Þetta er því í raun ágætt tilboð út til Alicante þann 8. júlí en þá er öll sagan sögð.









