Vart hefur fram hjá lesendum farið að Fararheill elskar Vueling hið spænska. Ekki aðeins er flugfélagið sýknt og heilagt að bjóða allra lægsta verð á flugi til Barcelona heldur er líka eðalfínt að fljúga með flugfélaginu. Ekki versnar það nú þegar sumarútsalan er hafin.
Hægt er að finna flug til ýmissa átta með Vueling þessa stundina og næstu sex dagana allt niður í 30 evrur sem gera miðað við gengi dagsins heilar 4.700 krónur. Þar er miðað við flug aðra leið með sköttum og gjöldum á einn einstakling en farangur kostar aukalega.
Fararheill hefur bent ferðaþyrstum á hversu sniðugt sé að brúka Barcelona sem fyrsta stopp en ekki aðalstopp og fljúga þaðan áfram hingað og þangað með Vueling. Í boði frá Barcelona eru tæplega eitt hundrað áfangastaðir í heildina og jafnvel þó aðeins sé verið að ferðast innanlands á Spáni má spara bæði tíma og peninga með flugi í stað lestarferða eða bílaleigubíls. Það höfum við gert ítrekað.
Ólíkt þeim íslensku sem bjóða tólf stunda eða 24 stunda tilboð er Vueling ekki að stressa fólk með slíku. Útsöluverð gildir á tilteknum ferðum og dagsetningum næstu sex sólarhringana og engin þrjú sæti í boði eins og sumir telja sniðugt heldur ein milljón sæta.








