Það vantaði ekki pomp né prakt né stóru orðin þegar ferðaskrifstofan Vita opnaði dótturfyrirtæki sitt Ferð.is hér fyrir tæpum þremur árum síðan. Nýja ferðaskrifstofan átti að „svara kalli neytenda eftir ódýrum“ ferðum og bjóða „sérlega hagstæð ferðakjör“ eins og það var orðað. Lítið bólar hins vegar á efndum.
Það kemur ritstjórn Fararheill ekki á óvart. Það er háttur markaðsmanna að lofa öllu fögru en öllu þyngra að standa við orðin þegar til kemur. Þó Ferð.is hafi á köflum boðið eina og eina ferð á sæmilegu verði er engin tilviljun að lítið sem ekkert fer fyrir ferðaskrifstofunni í dag. Hún er einfaldlega ekki að svara kallinu og að deyja drottni sínum.
Dæmi um það má finna á vef þeirra þessa stundina og við grípum aðeins niður í tvö dæmi af handahófi. Það er reyndar töluvert því ekki er mikið úrval ferða í boði hjá Ferð.is þegar þetta er skrifað.
Annars vegar er hægt að bóka einungis flug hjá Ferð.is. Þar í boði flug fram og aftur til Bodrum í Tyrklandi. Sama verð er á þeim ferðum og þær ekki gefins en einstaklingur þarf að greiða 99.900 krónur fyrir þann flugtúr. Tiltölulega galið verð á flugi þegar flug og gisting fæst niður í 90 þúsund fyrir rúma viku hjá öðrum aðilum. Verra er hjá ferðaskrifstofu sem stærir sig af því að bjóða sérlega hagstæð ferðakjör að ferðaskrifstofan Nazar býður einnig flugferðir til Tyrklands. Þar er um flug til Antalya að ræða sem er lengra flug en til Bodrum. Samt finnst flugið út og heim aftur niður í 89.599 krónur þessa stundina á svipuðum tíma. Það er tuttugu þúsund króna munur sé miðað við tvo einstaklinga og ekki er Nazar að fá mörg verðlaun fyrir lágt verð á flugi heldur.
Hins vegar er Ferð.is að bjóða ferðir til Calpe á austurströnd Spánar en flogið er til Alicante. Gist er á Ambar Beach í Calpe í vikutíma en ferðir til og frá flugvelli ekki innifaldar. Heildarverð fyrir par eða hjón samtals 290.041 krónur. Hótelið sem um ræðir er hálfdapurt tveggja stjörnu íbúðahótel og á hótelleitarvél Fararheill finnst gisting í sama herbergi og sömu viku og Ferð.is er að bjóða og verðmiðinn 113.000 krónur. Mínusum það frá kostnaði Ferð.is og eftir standa 178 þúsund krónur. Sem merkir að flug á einstakling fram og aftur til Alicante með Ferð.is kostar 89 þúsund krónur. Sem er líka galið verð á flugi til Alicante eða 45 þúsund krónur hvora leið um sig.
Hvað í ósköpunum er „sérlega hagstætt“ við slík tilboð?








