Bæði lögregla og heilsugæsluyfirvöld á Mallorca og Ibiza hafa gefið út sterkar viðvaranir til allra ferðalanga á svæðinu þar sem varað er við nokkrum nýjum tegundum fíkniefna sem fundist hafa í nokkru magni. Þar á meðal efnið cannibal, mannæta, hvers notkun vekur upp mikla ofbeldishneigð hjá ákveðnum hópi fólks.

Á Ibiza er jafnan gott að djamma og djúsa en kannski ekki mikið lengur. Mynd Amnesia

Á Ibiza er jafnan gott að djamma og djúsa en kannski ekki mikið lengur. Mynd Amnesia

Það er ekkert nýtt að fíkniefni séu vinsæl á Ibiza sérstaklega. Eyjan er að ganga í endurnýjun lífdaga sem djammstaður dauðans hjá ungu kynslóðinni eftir að hafa verið út um tíu til fimmtán ára skeið eða svo.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu voru tuttugu þúsund manns handteknir á eynni árið 2013 fyrir að eiga og dreifa fíkniefnum. Það var fjórðungs aukning frá árinu 2012 og hér skal hafa í huga að lögregla lætur fólk sem reykir eina og eina jónu afskiptalaust. Tölurnar vísa að mestu til dreifingaraðila.

Mannæta, cannibal eða kannibal, er sama ofskynjunarlyf og talið er hafa ollið minnst þremur viðbjóðslegu glæpum vestanhafs í fyrra. Í öllum tilvikum höfðu neytendur efnisins ráðist á fólk og byrjað að borða það. Sérstaklega er minnistætt atvik í Miami sem fjallað var mikið um í fjölmiðlum um heim allan. Þar var einn sturlaður einstaklingur loks stöðvaður eftir að hafa étið helming andlits heimilislauss manns.

Ef rétt reynist að um sama efni sé að ræða er kannski vænlegra að breyta ferðaáætlunum sínum og halda annað en til Ibiza.