Það er lítt þekkt staðreynd að slys ýmis konar og bilanir eiga sér stað í áætlunarflugi um heim allan hvern einasta dag ársins. Bara um liðna helgi voru skráð fimmtán atvik sem nógu alvarleg þóttu til að tilkynna en í flestum tilvikum um smávægilegar vélabilanir að ræða. Það er hins vegar algengur misskilningur að alvarlegri flugslysum sé mikið að fækka.

Sextán alvarleg flugslys á liðnu ári sem er meira en í meðalári frá aldamótum

Sextán alvarleg flugslys á liðnu ári sem er meira en í meðalári frá aldamótum

Á síðasta ári urðu alls sextán alvarleg flugslys í heiminum samkvæmt samantekt Airfleets.net sem heldur utan um þá tölfræði. Alvarleg flugslys eru þau slys þar sem fólk annaðhvort ferst eða slasast og eða vélin sjálf er ónýt eftir.

Í ljós kemur að síðustu árin hafa orðið kringum þrettán alvarleg flugslys í heiminum árlega frá aldamótum sem þó er töluvert færri slys en urðu metárið 1999 þegar hvorki fleiri né færri en 24 alvarleg flugslys áttu sér stað.

Einfalt er að sjá þetta á meðfylgjandi töflu frá Airfleets sem sýnir alvarleg flugslys árlega hin síðari ár. Af þeirri töflu er ekki að ráða að slíkum slysum fari fækkandi heldur þvert á móti fer þeim heldur fjölgandi.

flugslys