Hjá Icelandair vilja menn meina að þú fljúgir betur og hjá Wow Air hafa menn gefið sjálfum sér stimpilinn „flugfélag fólksins.“ Hástemmdar yfirlýsingar falla þó um sjálft sig ef eitthvað bjátar á. Þá brjóta bæði flugfélög reglur til þess að farþegar komist ekki að því að þeir eigi kannski að fá tjón sitt bætt og skaðabætur mögulega líka.

Það er flugfélögum í hag að láta engan vita af hugsanlegum bótum vegna tafa eða aflýsingar flugs. Og það virðast þau almennt ekki gera heldur eins og reglur kveða á um.
Það er til marks um getuleysi eftirlitsaðila hérlendis að frá því að Samgöngustofa hóf að birta alla kærur flugfarþega og úrskurði embættisins opinberlega árið 2009 er ljóst að hvorki innlendu flugfélögin né heldur Primera Air, sem eru þau þrjú flugfélög sem flytja hvað flesta Íslendinga frá A til B, sýna því minnsta áhuga að kynna farþegum réttindi sín og eða hugsanlegar bætur þegar og ef flug tefst, seinkar eða er aflýst.
Ekki í einu einasta kærumáli sem Samgöngustofa hefur fjallað um, og þau skipta hundruðum, virða flugfélögin lög þessa efnis.
Klassískara dæmi um að opinbert eftirlit þarf að hafa til að fyrirtæki fylgi settum reglum er sennilega ekki til hér á landi. Við verðum því að hafa fyrir þessu sjálf í öllum tilvikum.
Fararheill brýnir því fyrir fólki sem verður fyrir seinkun, töfum, aflýsingu eða öðru því sem miður fer fyrir flug að leita réttar síns strax. Því sé það eitt í viðbót sem upp úr stendur í úrskurðum Samgöngustofu er það sú staðreynd að undantekningarlítið er flugfélögunum gert að greiða skaðabætur til þeirra sem sækja rétt sinn fullum fetum.










