Fararheill hefur endrum og sinnum gagnrýnt ferðaskrifstofuna Vita ferðir fyrir að bjóða sjaldan eða aldrei upp á tilboðsferðir enda hending ef eitthvað finnst á sérstakri tilboðssíðu fyrirtækisins. Nú er hins vegar annað uppi á teningnum og aldeilis frábært tilboð til Kanaríeyja í boði í nóvember.

Eitt besta Kanarítilboð á boðstólnum er nóvemberferð Vita ferða. Mynd Miguel Angel Lopez

Eitt besta Kanarítilboð á boðstólnum er nóvemberferð Vita ferða. Mynd Miguel Angel Lopez

Ferðaskrifstofan er að bjóða heila 25 daga langa dvöl á allsæmilegu hóteli á ensku ströndinni á Kanarí fyrir svo lítið sem 109.900 krónur á mann miðað við tvo saman en flogið er út 26. nóvember og komið heim á ný 21. desember í tæka tíð fyrir jólahátíðina.

Þetta er náttúrulega ekkert minna en frábært tilboð en til samanburðar kostar þessi pakki svipað og allra, allra ódýrustu vikuferðir til Kanarí að sumarlagi. Pakkinn þýðir að hver dagur á par eða hjón kostar aðeins 8.700 krónur. Það er líkast til lægra verð per dag en vera heimavið á Íslandinu fyrir okkur flest.

Enginn matur er innifalinn hér sem er bara hið fínasta mál. Þá er hægt að nota tímann til að prófa alla veitingastaði í plássinu og lifa la dolce vita í þaula og það með Vita.

Allt um málið hér.