Fólk má leita lengi á helstu flugleitarvélum og það má meira að segja leita um alla eilífð á vef flugfélagsins Primera Air án þess að finna neitt ýkja merkilegt. Langi fólk hins vegar hræódýrt til Kaupmannahafnar næstu tvo mánuðina er málið að heimsækja vef Heimsferða.

Enn er hægt að kaupa flug aðra leið til Köben á 9.900 krónur. Skjámynd af vef Heimsferða

Enn er hægt að kaupa flug aðra leið til Köben á 9.900 krónur. Skjámynd af vef Heimsferða

Flugfélagið Primera Air hefur reglulega síðustu misserin boðið flugfargjöld til Osló, Billund og Kaupmannahafnar á 9.900 krónur aðra leiðina. Sem eru langbestu flugtilboð sem í boði eru í það og það skiptið því ekki aðeins er 9.900 krónur brandari heldur og er 20 kílóa taska plús handfarangur innifalinn í þeirri upphæð.

Hingað til hafa þessi ódýru flugfargjöld fundist strax við leit á vefsíðu Primera Air. En nú er allt í einu öldin önnur. Ódýrustu fargjöld aðra leiðina á vef flugfélagsins kosta um fimmtán þúsund krónur.

En viti menn! Sé skoðuð heimasíða Heimsferða, sem er í eigu sömu aðila og eiga og reka Primera Air, finnast flugfargjöld til Köben í mars og apríl á krónur 9.900.

Kannski forsvarsmenn Primera Air séu farnir að fela sín bestu tilboð eftir að það flugfélag komst loks inn í flugleit Dohop eins og Fararheill hefur greint frá. Það væri eftir öðru.

Á meðan allavega, ætti fólk að drífa sig á vef Heimsferða og kaupa upp þessa skrambi fínu flugtilboð til Köben. Og svo auðvitað finna sér hótel á bestu hótelbókunarsíðu heims hér að neðan.