Lengi hefur ritstjórn Fararheill talið að heilt yfir séu Íslendingar, með undantekningum þó, upp til hópa forvitið fólk og hugsandi. Nú bendir allt til þess að það mat sé rétt.

Fararheill tekur hatt ofan fyrir Bændaferðum sem ár eftir ár bjóða merkilega sérstakar ferðir sem alltaf seljast upp.

Fararheill tekur hatt ofan fyrir Bændaferðum sem ár eftir ár bjóða merkilega sérstakar ferðir sem alltaf seljast upp.

Allavega sé mið tekið af því hversu margar sérstakar ferðir Bændaferða eru löngu uppseldar. Þar erum við nefninlega ekki að tala um neinar gerilsneyddar Alicante- eða Benidormferðir.

Ferðaskrifstofan hefur um tíma auglýst nokkrar ljúffengar vorferðir utan alfararleiða eða með öðum orðum ferðir á aðra staði en allar stóru ferðaskrifstofurnar bjóða. Þetta vorið hafa verið auglýstar ferðir til frönsku rivíerunnar, til hins konunglega Marokkó, til Toskana héraðs á Ítalíu til að upplifa töfra þess héraðs og ekki síst ferðir til hinnar seiðandi Sardiníu svo eitthvað sé nefnt.

Það mega líka Bændaferðir eiga að þar er ekki verið að kasta til höndum þegar kynna á áfangastaði fyrir fólki. Þar gildir ekki ein og sama ferðalýsingin fyrir allar ferðir. Þar er metnaður í gangi.

En það þýðir ekkert að panta núna. Allt er uppselt.