Batnandi mönnum er best að lifa og það á við um starfsfólk Dohop eins og annarra á þessum bláa hnetti. Eftirleiðis munu verðkannanir Dohop taka tillit til flugfélagsins Primera Air.

Tekið til í ranni. Eftirleiðis verður mark takandi á verðkönnunum Dohop

Tekið til í ranni. Eftirleiðis verður mark takandi á verðkönnunum Dohop

Það hefur Fararheill fengið staðfest en eins og lesendur hafa orðið varir við höfum við harðlega gagnrýnt verðkannanir fyrirtækisins sem eiga að sýna hvaða flugfélag er að bjóða best þessa og hina stundina. Þær kannanir hafa hins vegar hingað til alfarið sleppt einu ódýrasta flugfélagi sem hingað flýgur: Primera Air.

Það hefur okkur þótt óboðlegt með öllu enda hlýtur tilgangurinn með slíkum verðkönnunum að vera að upplýsa neytendur en ekki þyrla upp frekari rykstormi. Því miður hafa fársjúkir fjölmiðlar étið upp hismið og látið kjarna málsins lönd og leið og skammast sín ekkert fyrir að blekkja lesendur.

En eftirleiðis ættu hlutirnir að vera í lagi. Ferðir Primera Air teknar með í reikninginn. Þá fæst samanburður sem fólk getur treyst.