Við höfum fengið þrjár fyrirspurnir varðandi miklar tafir á flugi Wow Air í gær þegar þrjár vélar félagsins voru mörgum klukkustundum á eftir áætlun.
Ekki hefur komið fram hvað nákvæmlega olli miklum töfum þar sem stóru fjölmiðlarnir hafa ekki náð í upplýsingafulltrúa flugfélagsins vegna málsins. Þetta vekur þó sérstaka athygli þar sem vélar þær sem Wow Air notast við eru flestar tiltölulega nýjar og bilanir í nýjum vélum óvenjulegar.
Án þess að fara um of út í bollaleggingar bendir þetta til þess að áætlun Wow Air sé einfaldlega svo stíf, hart keyrt á fáum vélum, að ekkert má út af bera til að allar áætlanir fjúki út í veður og vind. Tefjist ein vél riðlast áætlun á miklu fleiri leiðum. Slíkt var til dæmis stórt vandamál hjá Iceland Express þegar það var og hét og var ábyggilega ein ástæða þess að flugfélag brotlenti.
Burtséð frá því er nánast undantekningarlítið komin á bótaskylda gagnvart farþegum sem tefjast vegna eins eða annars í fleiri klukkustundir eins og raunin var í gær. Nema flugrekandi geti sýnt fram á að um óviðráðanlegar aðstæður hafi verið að ræða ættu bætur að tikka inn strax þegar töf fer framyfir þrjár klukkustundir. Skal hafa í huga að í lögum eru „óviðráðanlegar aðstæður“ túlkaðar mjög þröngt í Evrópu og farþegar njóta vafans. Evrópureglur eru í gildi hérlendis og fólk á undantekningarlítið að leita réttar síns. Fyrst hjá Wow Air en annars Flugmálastjórnar ef það gengur ekki. Hér að neðan má sjá Evrópulögin um tafir.
7 Article 6 of Regulation No 261/2004, headed ‘Delay’, is worded as follows:
‘1. When an operating air carrier reasonably expects a flight to be delayed beyond its scheduled time of departure:
(a) for two hours or more in the case of flights of 1 500 kilometres or less; or
(b) for three hours or more in the case of all intra-Community flights of more than 1 500 kilometres and of all other flights between 1 500 and 3 500 kilometres; or
(c) for four hours or more in the case of all flights not falling under (a) or (b),
passengers shall be offered by the operating air carrier:
(i) the assistance specified in Article 9(1)(a) and 9(2); and
(ii) when the reasonably expected time of departure is at least the day after the time of departure previously announced, the assistance specified in Article 9(1)(b) and 9(1)(c); and
(iii) when the delay is at least five hours, the assistance specified in Article 8(1)(a).
2. In any event, the assistance shall be offered within the time-limits set out above with respect to each distance bracket.’
8 Article 7 of Regulation No 261/2004, headed ‘Right to compensation’, provides:
‘1. Where reference is made to this Article, passengers shall receive compensation amounting to:
(a) EUR 250 for all flights of 1 500 kilometres or less;
(b) EUR 400 for all intra-Community flights of more than 1 500 kilometres, and for all other flights between 1 500 and 3 500 kilometres;
(c) EUR 600 for all flights not falling under (a) or (b).








