Allir þeir sem láta sig dreyma um ferð til Brasilíu og hafa kannað slíkar ferðir vita sem er að þangað er ekki ókeypis að komast. Bara flug fram og aftur getur kostað einstakling allt að 200 þúsund krónum á ódýrasta farrými.

Kílómetrar eftir kílómetrar af silkimjúkum ströndum. Mynd +simples

Kílómetrar eftir kílómetrar af silkimjúkum ströndum. Mynd +simples

Dönsk ferðaskrifstofa er meðal annars að bjóða strandferðir til þessa fagra lands í beinu flugi frá Kaupmannahöfn þessa stundina á viðráðanlegu verði eða fyrir 250 þúsund krónur á mann miðað við tvo. Þar eru tveir yndislegir strandbæir heimsóttir, Ilheus og Itacaré, sem báðir þykja afar hæfileg blanda af ferðamannastað en halda báðir sínum karakter.

Það er fjarri því eina ferðin í boði hjá Travel2Brazil ferðaskrifstofunni sem hefur nokkurra ára reynslu og ferðalög með Dönum eru oftast nær ívið skemmtilegri en með öðrum þegnum og kemur þar við sögu til hið vel þekkta kæruleysi og hversu auðveldlega Danir eiga almennt með að skemmta sér.

Hér vantar auðvitað aukakostnaðinn við flug til og frá Kaupmannahöfn en jafnvel þó sá sé tekinn inn í dæmið er þessar tvær vikur samt undir 300 þúsund krónum á mann. Það er barasta ágætt.