Það skal viðurkennast að ef fólk er ekki fyrir skíðaiðkun eða fjallgöngur er kannski ekkert sem dregur sérstaklega til smáríkisins Andorra sem þó er vel í akstursfjarlægð frá Katalóníu á Spáni. En nú er komin ný ástæða til að taka rúntinn.

Cirque du Soleil pakkar alla sala alls staðar í heiminum. Hægt að sjá þá frítt næsta sumar. Mynd Focka

Cirque du Soleil pakkar alla sala alls staðar í heiminum. Hægt að sjá þá frítt næsta sumar. Mynd Focka

Formlega heitir hún Andorra la Vella en hún gengur yfirleitt undir nafninu la Vella þessi höfuðborg þessa litla fjalllenda smáríkis sem er klemmt á milli Spánar og Frakklands.

Hún er ein fallegasta borg Evrópu umkringd fallegum fjöllum og fyrsta flokks skíðastaður á veturna. En hún er líka dýr enda skattaskjól og af því leiðir að íbúar hér margir eiga drjúgar innistæður og verðlag í borginni tekur eðlilega mið af því.

En það sem gerir la Vella miklu skemmtilegri en ella næsta sumar er sú staðreynd að hinn stórkostlegi kanadíski fjöllistahópur Cirque du Soleil ætlar að eyða sumrinu hér og bjóða upp á sýningar undir beru lofti. Það vita allir sem séð hafa þann hóp að það er ævintýralega gaman að upplifa.

Hópurinn hefur reyndar gengið svo langt að skapa sérstaka sýningu tileinkaða fjallóttu landslagi Andorra. Sýningin sem ber nafnið Scalada á að taka mið af fjöllum og firnindum landsins.

Alls verða sautján sýningar alls á sérstöku sviði í miðborginni frá 5. júlí og fram í byrjun ágúst. Tvö þúsund sæti eru í boði en þrjú þúsund manns í viðbót mega og geta fylgst með vandræðalaust. Frítt er á þær allar.