Þrátt fyrir nokkra yfirlegu finnur Fararheill engar „allt innifalið“ ferðir hjá innlendum ferðaskrifstofum undir 120 þúsund krónur á mann næstu mánuðina og fram á sumar. Á sama tíma auglýsir ferðaskrifstofa easyJet vikuferðir með öllu frá 40 þúsund krónur á kjaft. Á þessu er 200% verðmunur.
Það er ekkert minna en magnað tilboð jafnvel þó hótelið í því tilfelli sé aðeins þriggja stjörnu. En það er engu að síður staðsett á strönd Algarve í Portúgal og eins og „allt innifalið“ ber með sér þarf ekki einu sinni að yfirgefa hótelsvæðið. Ódýrara verður frí varla og gildir næstum einu þó fólk bæti við flug til og frá Íslandi. Einstaklingurinn er samt að greiða 40 þúsund krónum lægri upphæð en við finnum hérlendis.
Þetta ákveðna tilboð gildir um flug frá Gatwick þann 25. mars næstkomandi og er áfangastaðurinn Praia da Rocha í Portúgal. Þetta er aðeins eitt tilboð af mörgum sem ferðaskrifstofa easyJet býður upp á og gæti gagnast einhverjum hér heima ef fólki er ekki á móti skapi að þurfa að millilenda í Englandi.








