Forsvarsmenn flugleitarvélarinnar Dohop blekkja mann og annan með nýjustu verðkönnun sinni sem birtist á vefmiðli Vísi í dag. Þar er Wow Air sagt ódýrasti kosturinn til og frá Kaupmannahöfn. Það er rangt.

Verðkönnun Dohop sem birt er gagnrýnislaust á Vísi er röng

Verðkönnun Dohop sem birt er gagnrýnislaust á Vísi er röng

Þetta lepur Vísir upp eins og heilagan sannleika. Kannski á þetta ekki að koma á óvart. Dohop er í meirihlutaeigu þingmanns Framsóknarflokksins en samkvæmt þeim flokki er hugtakið „strax“ teygjanlegt um nokkurra mánaða skeið.

Fararheill gagnrýndi Dohop um daginn fyrir að birta ekki verð á flugi Primera Air sem einnig flýgur reglulega til og frá landinu. Ekkert hefur verið bætt úr því en skoðun á vef Primera sýnir glögglega að það flugfélag er að bjóða hvað best næstu mánuðina til Kaupmannahafnar.

Þegar þetta er skrifað fæst flug með Primera á 29.476 krónur fram og til baka til Köben og 20 kílóa taska innifalin í verði. Það er sjö til átta þúsund krónum lægra verð en Dohop segir lægsta verð til Köben með Wow Air næstu vikurnar.

Nýjasta verðkönnun Dohop „gleymir“ einu flugfélagi sem flýgur til og frá Íslandi. Og er ódýrast

Nýjasta verðkönnun Dohop „gleymir“ einu flugfélagi sem flýgur til og frá Íslandi. Og er ódýrast

Könnun á flugverði sem ekki tekur til allra sem fljúga þá leið er ómarktæk

Könnun á flugverði sem ekki tekur til allra sem fljúga þá leið er ómarktæk