Himinn og haf er milli þess sem fólki er gert að greiða í eldsneytisgjald hjá Icelandair annars vegar og Norwegian hins vegar aðra leiðina frá Keflavík til Oslóar samkvæmt úttekt Fararheill. Gjaldið er 9.200 krónur þessa leiðina með íslenska flugfélaginu en aðeins 1.690 hjá þeim norsku. Munurinn er 444 prósent.
Það er óheyrilegur munur en einhverjir gætu bent á að vélar Icelandair eru almennt þyngri þar sem fólki er heimilt að taka með sér farangur upp að ákveðnu marki án þess að greiða aukalega fyrir eins og hjá því norska. Þyngri vélar eyða meira eldsneyti. Sömuleiðis væri hægt að benda á að vélar Icelandair eru komnar til ára sinna og eyða þess vegna sömuleiðis mun meira eldsneyti en glænýjar vélar Norwegian.
Þetta gætu verið ágæt mótrök ef ekki væri fyrir þá staðreynd að SAS sem einnig flýgur milli Keflavíkur og Oslóar og býður farþegum sínum líka að taka með farangur án aukagjalds innheimtir aðeins 3.170 krónur í eldsneytisgjald og þar er meira að segja sérstakt öryggisgjald inni í þeirri upphæð. Eldsneytisgjald Icelandair er því 190 prósentum hærra en hjá SAS á nákvæmlega sömu flugleiðinni til Oslóar.
Slíkan samanburð er illmögulegt að gera á flugleiðum til London eða Kaupmannahafnar sökum þess að hvorki Wow Air, Primera Air né easyJet sem þær leiðir fljúga gefa upp kostnað vegna eldsneytis. Hann er falinn inni í flugmiðaverðinu sjálfu og ekki tiltekinn sérstaklega. Hægt væri að líta svo á ekkert eldsneytisgjald sé tekið hjá þeim aðilum meðan Icelandair krefur sína farþega um sömu 9.200 krónurnar þær leiðirnar líka.
Hér áður þegar Iceland Express var starfrækt gaf það fyrirtæki reglulega upp sinn eldsneytiskostnað en vélar þeirra voru sem kunnugt er í eldri kantinum líka eins og vélar Icelandair. Þá munaði gróflega þrjú til fjögur þúsund krónum á eldsneytisgjaldi þeirra og Icelandair árið 2008. Án þess að nokkuð sé hér fullyrt má leiða líkur að því að hluti eldsneytis í fargjaldi Wow Air sé einhvers staðar á þeim slóðum líka.
Sé litið til flugferða til New York þar sem Icelandair keppir við bandaríska flugfélagið Delta yfir sumartímann kemur í ljós að farþegar Icelandair greiða hærra skatta/gjöld aðra leið til New York en þeir gera með Delta þó munurinn sé ekki mikill. Skattar Icelandair, þar sem innifalið er eldsneytisgjald, þessa leið nema 23.870 krónum meðan farþegi sömu leið með Delta borgar 23.390 krónur. Hér líka er því Icelandair á toppnum ef svo má að orði komast.














