Evrópumótið í handknattleik er innan seilingar og þar tekur íslenska landsliðið þátt og gerir okkur öll eflaust stolt eins og endranær. Handknattleikssambandið hefur sett saman nokkra stutta og laggóða ferðapakka fyrir áhugasama.
Það er í samvinnu við Icelandair sem ætlar að fljúga mönnum þráðbeint til Álaborgar og eru ferðapakkarnir fjórir alls. Allir ná þeir yfir tvo daga og innifaldir eru miðar á fjóra leiki á þessu mikla handboltamóti.
Út með ykkur!








