Ferðaþyrstir Íslendingar sem hugsa með báðum heilahvelum hafa líkast til veitt því athygli að ekkert lát er á tilboðsfargjöldum Wow Air. Frá áttunda júlí hefur okkur boðist reglulega að fljúga hingað og þangað með flugfélaginu undir tíu þúsund krónum aðra leiðina.

Fargjöld Wow Air nú boðist undir tíu þúsund krónum tvo mánuði í röð. Jákvætt mál og löngu tímabært. Mynd Aero Icarus

Fargjöld Wow Air nú boðist undir tíu þúsund krónum tvo mánuði í röð. Jákvætt mál og löngu tímabært. Mynd Aero Icarus

Sem er frábært og löngu, löngu tímabært hjá flugfélagi sem kennir sig við lággjaldastemmningu eins og Fararheill hefur bent á aftur og aftur og aftur og aftur.

Tíu þúsund krónur eru nefninlega þegar allt kemur til alls hámarksverð á stuttu þriggja til fjögurra stunda flugi hjá öllum lággjaldaflugfélögum Evrópu sé bókað með einhverjum smá fyrirvara.

Enginn þarf samt að taka okkar orð fyrir því. Það nægir að kíkja á vef Norwegian sem nú býður flug aðra leiðina til Alicante í október niður í 9.300 krónur. Vef Ryanair sem flýgur með fólk aðra leiðina frá London til Barcelona niður í 3.400 krónur. EasyJet sem flytur mann og annan til Antalya í Tyrkland frá London undir tíu þúsund krónum í næsta mánuði eða Wizz Air sem selur sæti frá London til Svartahafsstrandar Búlgaríu fyrir rétt rúman fimm þúsund kall.

Það er sem sagt MJÖG ALGENGT að finna flug þvers og kruss um Evrópu og jafnvel lengra UNDIR 10 þúsund krónum með sköttum og gjöldum en engum farangri. Wow Air þarf í raun að bjóða tíu þúsund króna fargjöld sín alltaf til að vera samkeppnishæfir við það sem gerist á alvöru samkeppnismarkaði.

Útlit er fyrir að menn hjá Wow hafi loks kveikt á þessari peru og er það vel. Nei annars, það er lágmark.