Að því gefnu að afnám hafta litlu íslensku krónunnar, sem telja verður mjög líklegt að valdi frekari falli hennar, gangi ekki í gegn alveg á næstunni gætum við notið góðs af falli annars gjaldmiðils svo um munar fljótlega.
Þann átjánda september næstkomandi ganga Skotar til kjörklefa að kjósa um sjálfstæði frá Bretum og svo virðist sem í London séu menn loks farnir að titra allverulega. Ástæðan sú að sjálfstæðisfylking Skota er að mælast með lítið eitt minna fylgi en þeir sem vilja óbreytt ástand og ljóst þykir að mjótt verður á munum sé að marka spár.
Skotar hins vegar eru í win-win aðstöðu í málinu ef svo má að orði komast. Þeir fá vitaskuld sitt fulla sjálfstæði með þeim kostum og göllum ef þegnar landsins kjósa svo en Skotar fá líka töluvert í sinn hlut ef mannskapurinn kýs áfram að vera í samkrulli við London, Belfast og Cardiff. Englendingar hafa nefninlega lofað Skotum enn meira sjálfræði ef tekst að halda Skotlandi innan Bretlands. Hafa Skotar þó töluvert mikið um sín mál að segja nú þegar og má gera að því skóna að Skotar muni því sem næst verða sjálfstæðir í öllu nema nafni ef loforð Englendinga standast. Þeir fá meira vægi í Westminster, meira að segja um olíuauðinn sem streymir inn í landið frá borpöllum undan norðurströndum Skotlands og mega ráðskast meira með eigin efnahag án þess að London komi þar nærri.
Það þarf engan stjórnmálafræðing til að vita að fái Skotar aukin völd frá Englandi er þess varla langt að bíða að yfirvöld á Norður-Írlandi og í Wales fari að hugsa sinn gang.
Þetta merkir að hvernig sem fer mun óvissan um framtíð Bretlands og eða Skotlands hafa töluverð neikvæð áhrif á gjaldmiðil landsins. Fjárfestar þola ekki óvissu og þá gildir einu hvort um er að ræða Zimbabwe eða Bretland. Og óvissa þýðir undantekningarlaust fall gjaldmiðils.
Þar sem eins dauði er annars brauð gæti þetta haft í för með sér að varningur sem við Íslendingar kaupum í Bretlandi/Skotlandi á næstu misserum gæti kostað minna en verið hefur. Jólaverslun í London, Edinborg, Belfast, Glasgow, Bristol, Birmingham, Manchester eða Luton gæti því verið enn hagkvæmari kostur en verið hefur. Þó líklega aðeins um tíma því viðskipti Íslands við Bretland eru talsverð og öngþveiti þar mun fyrr eða síðar hafa áhrif á krónuna líka.








