Vetrarbæklingar ferðaskrifstofanna berast í landsins hús þessi dægrin og jákvætt er að þeir eru aðeins þykkari en fyrir ári síðan. Sem hlýtur að merkja að hagur þeirra er betri, úrvalið því meira og hver veit nema ferðatilboðin séu bara betri líka.

Forvitnilegt að sigla gegnum Panamaskurðinn en það er þó landið sjálft sem er tilkomumest. Mynd Royal Navy Media
Fararheill tók stikkprufu á einni af fimm siglingum sem ferðaskrifstofa Pálma Haraldssonar, Úrval Útsýn, býður upp á. Pálmi þessi, fyrir þá sem hafa gullfiskaminni, svindlaði á Íslendingum gegnum Sölufélag garðyrkjamanna á sínum tíma og okraði þar með samráði eins og hann best gat á tómötum og eplum. Fyrir utan ýmislegt annað grunsamlegt.
En er karlinn að okra á ferðum Úrval Útsýn?
Við kíktum á fimmtán daga siglingu ÚÚ gegnum Panamaskurðinn fræga en sú sigling á víst að vera „ógleymanleg“ samkvæmt markaðsfræðingum ferðaskrifstofunnar. Fararheill hefði haldið að það væri persónubundið en í þessari ferð svona líka algilt. Sennilega einhver sjáandi að störfum hjá ferðaskrifstofunni sem veit slíkt fyrirfram.
Ferðin umrædda hefst 11. apríl 2015 og byrjar á flugi til Denver, öðru flugi þaðan til San Diego þar sem stigið er um borð og siglt sem leið liggur gegnum Mið-Ameríku og endað fimmtán dögum síðar í Fort Lauderdale í Flórída. Fort Lauderdale er fyrir ókunna aðeins spottakorn frá Orlando. Flogið er til Denver með Icelandair og heim aftur frá Orlando. Í millitíðinni er þremur nóttum eytt á hóteli í San Diego og Denver og reyndar tíma eytt í skoðunarferð í Los Angeles líka.
Við erum reyndar oggulítið rugluð á ferðaáætlun þeirri sem ÚÚ kynnir í bæklingi sínum. Fyrsta stopp á siglingunni er víst í Cabo Dan Lucas í Mexíkó. Gallinn þar sá að enginn slíkur staður finnst í landinu. Cabo San Lucas er öllu líklegri og við veðjum á það. En svo kemur þetta;
„Í siglingunni er komið til hafnar í Cabo Dan Lucas og Puerta Vallerta í Mexíkó, Puerto Quetzal í Guatemala, Puntarenas í Costa Rica og síðan er siglt í gegn um Panamaskurðinn og síðan er stoppað í Colon í Panama og Cartagen í Colombíu áður en siglt er til Fort Lauderdale. Síðan eru sjö dagar á siglingu sem hægt er að njóta þess sem skipið og áhöfn þess hefur upp á að bjóða.“
Ekki aðeins er þetta ruglingslegt heldur og kolrangt. Ber okkur að skilja þetta sem svo að EFTIR að komið er til hafnar í Fort Lauderdale taki við ÖNNUR sjö daga sigling? Varla. Og hvað er átt við með að þá geti fólk loks notið þess sem um borð er? Er það sem sagt ekki hægt alla ferðina?
Ok, einhver menntaskólanemi í aukavinnu fengið að skrifa ferðalýsingu og kannski þess vegna fæst ferðin á lægra verði en ella? Samtals kostnaður við þessi herlegheit í káetu með glugga fyrir tvo saman er 1.099.800 krónur. Ellefu hundruð þúsund krónur á mannamáli eða 550 þúsund krónur á mann miðað við tvo.
Fararheill fór á stúfa og eftir skamma leit funduð við sams konar ferð og það hjá ferðaskrifstofu American Express vestanhafs. Já, í ljós kemur að kortaveltan ein og sér er ekki að duga þessum stórfyrirtækjum heldur verða þau að komast yfir meira. Nóg um það. Ferðin er öllum opin en korthafar njóta fríðinda eins og gengur. Ferðin er nánast eins. Fimmtán daga sigling frá San Diego til Fort Lauderdale gegnum Panama. Skipafélagið er þó annað og tíminn líka. Hér er um að ræða Celebrity Cruises en ekki Royal Caribbean eins og hjá Úrval Útsýn.
Verð á okkar ferð sem hefst strax þann 19. nóvember næstkomandi í káetu með glugga kostar alls 550.334 krónur miðað við miðgengi dagsins. Alls tæpar 276 krónur á mann miðað við tvo.
Hér vantar þó ýmislegt. Flug á mann til Denver með Icelandair tveimur dögum fyrir brottför fæst á 48.010 krónur eða 96.020 krónur alls. Flug með United frá Denver daginn eftir komu til San Diego kostar manninn 13.808 krónur eða samtals 27.616. Þrjár nætur á sæmó hóteli í Denver og San Diego fást á hótelleitarvél Fararheill fyrir um 25 þúsund krónur. Að síðustu fæst flug heim frá Orlando eftir að siglingu lýkur fyrir 52.150 krónur á haus. Alls 104.300 fyrir parið.
Heildarverðið gangi fólk frá öllu þessu á eigin spýtur er þannig 800.270 krónur miðað við tvo saman. Þannig að svarið við því hvort verið sé að okra á fólki er að okkar mati jákvætt en þó ekki alvarlega.
Hafa skal í huga að í ferð ÚÚ er þjórfé um borð innifalið. Það getur hoppað í 20 til 30 þúsund fyrir svona ferð. Einnig skal hafa í huga að ferðin er tryggð gegnum ferðaskrifstofuna meðan aðeins er hægt að treysta á sjálfan sig ef fólk skipuleggur slíkt sjálft. Fyrir utan þægindin að láta ferðaþjónustuaðila sjá um öll smáatriðin. Síðast en ekki síst er íslenskur fararstjóri með í för sem mörgum finnst ómissandi líka. Ekkert er þó um þann aðila á vef ÚÚ. Kannski sami menntaskólanemi og skrifar ferðalýsingarnar….
Hafið samband við Fararheill@fararheill.is ef aðstoðar er þörf eða spurningar vakna. Við hjálpum sé þess kostur.







