Það er ekkert auðvelt að reka flugfélag. Þaðan af síður er auðvelt að reka flugfélag í stórum plús og á sama tíma taka við viðurkenningum ár eftir ár fyrir framúrskarandi þjónustu gagnvart viðskiptavinum.

EasyJet enn að toppa. Mynd Clement Alloione

EasyJet enn að toppa. Mynd Clement Alloione

Eitt þeirra flugfélaga sem tekist hefur að reka með dugnaði í þokkabót við að koma fram við viðskiptavini eins og best verður á kosið er breska flugfélagið easyJet. Þó um lággjaldaflugfélag sé að ræða og eitt þeirra allra fyrstu slíkra flugfélaga í heiminum hefur afar sjaldan fallið skuggi á félagið og merkilega lítið af neikvæðu umtali eins og til dæmis er næsta daglegt brauð í fjölmiðlum varðandi samkeppnisaðilann Ryanair.

Það helgast af því að ólíkt Ryanair tekur easyJet kvartanir yfirleitt alvarlega og kemur ótrúlega fljótt til móts við farþega sem orðið hafa fyrir tjóni af einhverju taginu. Flugfélagið var til dæmis eitt fárra sem ekki kvartaði hástöfum þegar Evrópudómstóllinn komst að því að eldgos í Eyjafjallajökli breytti engu um að flugfélög yrðu að sjá farþegum fyrir máltíðum og gistingu meðan flug lægi niðri.

Hvers vegna erum við með þessa lofgjörð um easyJet kann einhver að spyrja. Svarið það að í gær, föstudaginn fimmta september, setti easyJet met. Aldrei fyrr í 20 ára sögu félagsins hafa jafnmargar vélar þeirra verið á lofti með jafnmarga farþega og þann sólarhringinn en þá flaug félagið hvorki fleiri né færri en 1451 ferð með 210 þúsund farþega. Flugfélagið gæti því í raun sinnt öllum árlegum ferðamannastraumi til Íslands á rúmri viku eða svo til samanburðar.