Þó ritstjórn Fararheill hafi stórar efasemdir um að ríkasti Íslendingurinn geti með góðri samvisku kallað flugfélag sitt lággjaldaflugfélag sé mið tekið af verðlagningu þess almennt er það þó raunin. Sem þýðir að samanburður við önnur lággjaldaflugfélög er hreinn og beinn. Þar hins vegar stendur Wow Air afar höllum fæti.
Fararheill kannaði verð á flugi Wow Air til Alicante frá apríl og fram í ágúst 2014 og bar saman við fargjöld easyJet sömu leið sömu mánuði en þó með þeim leiðindamun að ekki er komist beina leið með því síðarnefnda. Til þess þarf að stoppa annaðhvort í Luton eða í Bristol í Englandi eins og staðan er.
Þarna er því ekki hundrað prósent verið að bera saman nákvæmlega sama hlut og skal fólk hafa það hugfast. Þörf er á millilendingu í tilfelli easyJet og í samanburði notuðum við Bristol þaðan sem flugfélagið hefur flug til Íslands fljótlega.
Við leituðum að allra lægstu fargjöldum Wow og easyJet alla umrædda mánuði en Wow Air er einrátt eins og sakir standa með beint flug til Alicante. Sem er stórmerkilegt því um er að ræða einn allra vinsælasta áfangastað landsmanna. Engu að síður dró Icelandair sig frá Alicante fljótt eftir að hafa flogið þangað í skamman tíma árið 2010. Aldrei hefur fengist upplýst hvers vegna það flugfélag hætti ferðum þangað sísona.
Niðurstaðan er Wow Air alls ekki í hag eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Öll verð á henni rétt kl. 19 þann 12. október 2013 en hafa skal í huga að verðbreytingar eru örar hjá báðum aðilum sem hér um ræðir. Ódýrara er að fljúga með easyJet til Bristol, þaðan til Alicante og sömu leið til baka með eina tösku á mann alla vor- og sumarmánuðina nema í ágúst. Munurinn er meira að segja talsverður og gæti verið nægur til að réttlæta millilendingu dag eða daga í Bristol. Munurinn dekkar allavega fína hótelgistingu þar og jafnvel vel það.
Hugmyndin með þessu er þó ekki að sýna fram á hve easyJet bjóða vel heldur meira að sýna að þrátt fyrir ítarleg loforð Wow Air er fyrirtækið bara engan veginn að standa við stór orð sín um að bjóða besta verð og þjónustu og guð má vita hvað annað.
Við lærðum það í leikskólanum forðum daga að setja sig aldrei á háan hest gagnvart öðrum. En forsvarsmenn Wow Air voru líklega ekki á sama leikskóla.
* Öll verð rétt miðað við leit á vef easyJet og Wow Air milli 18:30 og 19. Evrum breytt í krónur miðað við miðgengið á föstudag. Einn einstaklingur með eina tösku fram og aftur.









