Árið er 2013. Samskipti fólks eiga sér stað að stóru leyti á Facebook, Google, Twitter, LinkedIn og öðrum slíkum samfélagsmiðlum. Engu að síður sér risafyrirtækið Icelandair ástæðu til að svara ekki kvörtunum um helgar.

Einn og hálfur dagur síðan brýnt erindi birtist á fésbókarvef Icelandair. Enn ekkert svar einum og hálfum degi síðar.

Einn og hálfur dagur síðan brýnt erindi birtist á fésbókarvef Icelandair. Enn ekkert svar.

Fararheill fylgist nokkuð grannt með hvort okkar ástkæru ferðaþjónustufyrirtæki standa sig í stykkinu gagnvart fólki og þá sérstaklega varðandi kvartanir hvers konar eða erindi sem hvíla þungt á viðskiptavinum.

Við vitum sem er að Icelandair hefur tekið til hendinni á samfélagsvefum og stóraukið umsvif sín á þeim vettvangi. Sem er eðlilegt og því kemur á óvart að erindum á fésbókinni sé ekki svarað heila helgi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Skeyti til félagsins frá hádegi á laugardaginn var hefur enn ekki verið svarað nú einum og hálfum sólarhring síðar.

Við trúum varla að enginn sé við tölvurnar í þjónustuveri Icelandair um helgar. Nær lagi er kannski að erfiðari fyrirspurnir þurfi að bíða blessunar yfirmanna sem EKKI eru að vinna mikið um helgar. En þetta fellur í öllu falli ekki undir neitt sem flokkast sem „þjónusta“ samkvæmt orðabók.