Detta allar dauðans lýs úr hári. Ekki fyrr er ritstjórn Fararheill búin að gera lítið úr lággjaldaflugfélagi sem nánast aldrei býður fargjöld undir tíu þúsund krónum fyrr en Wow Air vaknar til lífsins og það svo um munar.
Flugfélagið er enn einn daginn að bjóða sértilboð á flugi til hinna ýmsu áfangastaða og það undir tíu þúsund krónunum þó reyndar auglýsi Wow alltaf verð sín án sérstaks bókunargjalds.
Engu að síður er þetta hið flottasta mál; Wow Air stendur loks undir nafni sem lággjaldaflugfélag og þorrinn kemst erlendis og það í allt sumar og fram á haust fyrir það sem við teljum vera „eðlilegt“ verð.
Í boði er þennan daginn að fljúga aðra leiðina til Parísar, Kaupmannahafnar eða London allt niður í 8.990 krónur hjá flugfélaginu eða rétt tæplega tíu þúsund sé bókunargjald með talið. Verð miðast við ferðalag án farangurs nema handtösku. Jafnvel þó ein slík taska sé með tekin er samt komist erlendis undir fimmtán þúsund krónur og kringum 30 þúsund fram og aftur með farangur. Það er sæmilegt Wow í okkar huga.








