Einn æðsti yfirmaður ferðaskrifstofunnar Nazar þvertók fyrir það síðasta haust þegar sú tók til starfa hér á landi að hugmyndin væri að stofna til verðstríðs eða koma með verðbombur á íslenskan markað. Það gerði Nazar Ísland engu að síður í gær og vel tókst til.

Útsölukjör á sumarleyfisferðum er ekki eitthvað sem við eigum að venjast hér í ballarhafi. skjámynd

Útsölukjör á sumarleyfisferðum er ekki eitthvað sem við eigum að venjast hér í ballarhafi. skjámynd

Ferðaskrifstofan bauð þá í einn sólarhring helmings afslátt af ferðum sínum til Tyrklands í sumar. Fyrir þá sem vel fylgjast með samkeppni erlendis er það ekki svo nýstárlegt. Duglegir afslættir af ferðum eru gjarnan veittir með reglulegu millibili en það hefur ekki verið raunin hér á landi. Í raun má segja að slík afsláttarkjör hafi aldrei sést á Íslandi áður. Vissulega hafa stöku ferðaskrifstofur boðið tvo-fyrir-einn tilboð inn á milli en slíkt hefur verið takmarkað við síðustu sæti í eina og eina ferð.

Þetta eru því töluverð tíðindi jafnvel þó tilboðið hafi aðeins staðið einn dag en heimildir Fararheill herma að sala gærdagsins hafi verið góð.

Þetta styrkir líka mjög þá kenningu okkar að tilkoma Nazar á markaðinn hafi þrátt fyrir allt sett ýmislegt í uppnám hjá þeim innlendu en síðustu viku eða svo hafa þær nokkrar boðið ótrúlega fín kjör á mörgum ferðum sínum í sumar. Betri kjör en venjan er að finna snemmsumars.

Vonandi er helmings afsláttur af ferðum komið til að vera hérlendis og landinn geti í framtíðinni farið með fjölskyldunni á fjarlægar slóðir án þess að heildarreikningurinn endi í milljónum króna.