Á leið út í heim og ekki búin að bóka hótel ennþá? Þá er tækifærið núna að dvelja í þokkalegum lúxus og fyrir lægra verð en ella á Hilton hótelum um heim allan.
Sumarútsala Hilton keðjunnar er hafin en þann tíma sem sú stendur yfir lækkar verð á flestum hótelum Hilton um 33 prósent. Það munar um minna en tilboðið gildir þó aðeins um gistingu í sumar. Engu að síður er það staðreynd að gæðastimpill er á Hilton eins og þeir vita sem þar hafa hallað höfði gegnum tíðina. Þjónustan yfirleitt óaðfinnanleg.








