Okkur telst til að þessa stundina séu ferðaskrifstofur hérlendis að bjóða að minnsta kosti tíu mismunandi ferðatilboð. Það er mun meira en í meðallagi á háannatíma. 

Tilboðssíða Heimsferða er óvenju full af tilboðum út í heim. skjáskot

Tilboðssíða Heimsferða er óvenju full af tilboðum út í heim. skjáskot

Tilboðssíða Heimsferða er nánast pökkuð og þar ein fjögur tilboð og þar af þrjú svokölluð 2-fyrir-1 tilboð. Sömuleiðis er Vita að auglýsa tvær utanlandsferðir á sérstaklega lækkuðu verði svo ekki sé minnst á tilboð á ferðum Plúsferða og Úrval Útsýn.

Allar eiga þessar ferðir það sameiginlegt að hefjast á allra næstu dögum og allar hafa ferðaskrifstofurnar verið að auglýsa þær síðustu viku eða svo.

Þetta er gott fyrir landann enda ekki svo langt síðan alls engar „tilboðssíður“ fundust yfir höfuð hjá hinum stóru íslensku ferðaskrifstofum. Skyldi þó ekki vera að tilkoma Fararheill hafi haft eitthvað um það að segja enda enginn annar sem hefur gagnrýnt það en við gegnum tíðina.

En fjöldi tilboða vekur athygli. Það er komið inn í háannatíma á sumarleyfisferðum og í öllum eðlilegum atvinnugreinum lækka menn ekki verð og auglýsa útsölur þegar sem allra mest er að gera.

Þá er aðeins tvennt sem kemur til greina. Annar vegar hafa ferðaskrifstofurnar ofmetið ferðasölu í byrjun sumars eða hins vegar er það loks að gerast að meiri og grimmari samkeppni er að kikka inn. Þetta er fyrsta sumarið sem hin erlenda ferðaskrifstofa Nazar selur Íslendingum ferðir út og án alls efa fjölgar þeim ört, eins og annars staðar í heiminum, sem skipuleggja sínar eigin ferðir heima í eldhúsi og sætta sig ekki við rándýrar skipulagðar ferðir eins og áður. Það hefur aldrei verið auðveldara en nú með tilkomu lággjaldaflugfélaga og fjölgunar ferða íslensku flugfélaganna.

En kannski er þetta aðeins tilviljun ein. Hvert sem svarið er gæti einhver komist á lægra verði út í heim næstu dagana sé hlaupið til nú þegar.