Innlendar ferðaskrifstofur hafa á köflum boðið eina og eina Indlandsferð og raunin verið að slíkar ferðir hlaupa vel í milljón krónur og jafnvel plús það á parið. Nú býður hin virta franska ferðaskrifstofa Nouvelles Frontieres ellefu nátta safaríka ferð í september og verðmiðinn hér aðeins 150 þúsund krónur frá París.

Þrætt um fjölmarga frábæra staði eins og Jaipur í Indlandsferð Nouvelles Frontieres. Mynd Arian Zwegers
Óþarfi að rífast um að það verð er barasta frábært og ekkert minna. Ferðin þó ekkert slor þó ódýr sé enda Nouvelles Frontieres ekki virt fyrir ekki neitt.
Rúntað er um Delí, Mandawa, Bikaner, Jodhpur, Jaipur, Amber, Taj Mahal og Agra svo nokkrir áfangastaðir séu nefndir. Gisting er reyndar ekki fimm stjörnu heldur þriggja og fjögurra stjörnu en allur matur alls staðar er innifalinn í verði.
Bæði Wow Air og Icelandair bjóða beint flug til Parísar og reyndar hið fyrrnefnda að bjóða sértilboð á flugi þangað í haust og vetur. Sé fólk ekkert að druslast með tonn af farangri er vel hægt að kaupa flug þangað og heim aftur á 40 þúsund krónur samtals á mann. Það hækkar heildarverð á Indlandsferðinni upp í heilar 380 þúsund krónur fyrir tvo sem er ennþá afar gott ferðatilboð að okkar mati.
Allt um málið hér en hafa skal í huga að fararstjórn í ferðinni er á frönsku og því sniðugt að kunna hrafl í því ágæta máli.







