Segið svo að Icelandair læri ekkert af því að lesa Fararheill. Nú apar hið íslenska flugfélag eftir hinu kínverska Cathay Pacific og býður áhugasömum með stóra fætur og seðla í veski að gera tilboð í betri sæti í vélum félagsins.

Fyrir nokkrum mánuðum greindi Fararheill frá því að erlent flugfélag byði upp á betri sæti gegnum uppboð. Icelandair leikur nú sama leik.

Fyrir nokkrum mánuðum greindi Fararheill frá því að erlent flugfélag byði upp á betri sæti gegnum uppboð. Icelandair leikur nú sama leik.

Túristi greinir frá því að hið íslenska flugfélag bjóði nú farþegum sínum sem vilja njóta aðeins betri aðbúnaðar en á almenningnum upp á að gera tilboð í betri sæti og betri þjónustu áður en flogið er. Með öðrum orðum; hægt er að verða sér úti um sæti á Saga Class fyrir töluvert minni upphæð en ella með því að bjóða í laus sæti áður en flogið er.

Ágætt mál og ekki síst fyrir þá sem bágt eiga með að fljúga í þröngum almenningssætum og þeir eru margir jafnvel þó sætabil hjá Icelandair sé ívið meira en hjá lággjaldaflugfélögum til dæmis.

Hugmyndina hafa forráðamenn þó vísast fengið hjá Fararheill en við skýrðum frá þessari nýjung í lok maí þegar hið kínverska Cathay Pacific lét fyrst reyna á slíka hugmynd eins og lesa má um hér. Samkvæmt miðlum í Hong Kong hefur þetta reynst allvel enda samkeppnin grimm á þeim slóðum og eins og ávallt eru það neytendur sem njóta ávaxtanna af hatrammri samkeppni. Sem er reyndar nokkuð sem Icelandair þarf ekki að glíma mikið við.