Það er ekki til það flugfélag í heiminum sem ekki leitar enn leiða til að kreista hverja krónu út úr rekstrinum og þykir reyndar mörgum farþeganum þegar of langt gengið í því tilliti. Nú ætlar flugfélagið Cathay Pacific senn að bjóða áhugasömum að gera tilboð í betri sæti um borð í vélum þeirra.

Viðskiptafarrými Cathay er ekkert slor. Mynd Luke Lai

Viðskiptafarrými Cathay er ekkert slor. Mynd Luke Lai

Ástæðan sögð vera sú að of mikið af dýrari sætum um borð hjá Cathay séu tóm þegar farið er í loftið. Það er dauður peningur svo vitnað sé í viðskiptamenntaða. Ýmsar leiðir hafa verið farnar gegnum tíðina. Meiri og betri þjónusta, forgangur í röð, sæti sem leggja má aftur og svo framvegis en allt kemur fyrir ekki. Almennt er ekki uppselt á viðskiptafarrými og í önnur dýrari sæti hjá flestum flugfélögum.

Nú geta flugfarþegar gert tilboð í betri sæti eða farrými áður en lagt er í ferðina og eins og hefð er fyrir á uppboðum hlýtur sá hnossið sem best býður. Viðkomandi fær að vita um vinninginn fjórum dögum fyrir brottför að því er fram kemur í South China Morning Post.

Plúsinn auðvitað sá, eins og á öllum uppboðum, að stundum er eftirspurn það lítil að meðalJón og meðalGunna gætu af og til með þessu móti hallað sér aftur á fyrsta farrými með koníak og Dolce & Gabbana súkkulaði og brosað út í eitt án þess að hafa eytt mikið hærri upphæð en annars.