Það er ár og dagur síðan við gátum síðast með góðri samvisku hrópað húrra og það jafnvel tvöfalt fyrir einhverjum ferðatilboðum Wow Air. Í dag auglýsti flugfélagið loks aldeilis frábær tilboð til allra sinna áfangastaða og flug aðra leið allt niður í tæpar átta þúsund krónur.
Það er afar gott verð á flugi út í heim og gaman að þessu í alla staði. Ástæða er þó fyrir herlegheitunum því Wow Air segist vera tveggja ára. Sem er strangt til tekið ekki alveg rétt heldur eru tvö ár síðan jómfrúarflug félagsins fór í loftið. Fyrirtækið sjálft er þó eldra.
En illu heilli fyrir Mogensen og félaga hefur gengið ekki gert sér grein fyrir mikilli og brýnni þörf á lágum flugfargjöldum því frá því að tilboðið var auglýst hefur vefur Wow Air verið afar hægur eða alveg niðri og er niðri þegar þetta er skrifað.
Hið jákvæða þó að flugfélagið hefur af því tilefni fjölgað tilboðsferðum um helming og framlengt kaupfrestinn til miðnættis annað kvöld.
Fararheill mælir með að fólk grípi þessa gæs og vonandi sjáum við meira af slíkum eðaltilboðum frá Wow á næstu vikum, mánuðum og árum.








