Allir þeir sem ætla sér að þvælast um á eigin bíl um Evrópu ættu kannski að hugsa sig tvisvar um áður en þeir setja landamerkimiðann IS á besta stað á bílnum. Svo virðist sem margir telji að það standi fyrir Ísrael jafnvel þó nafn Íslands og fáni prýði einnig merkið.

Töluverð andúð er víða í garð Ísraelsmanna og landamerkið IS er auðvelt að túlka sem merki Ísrael. Skjáskot FÍB

Töluverð andúð er víða í garð Ísraelsmanna og landamerkið IS geta ýmsir túlkað sem merki Ísrael. Skjáskot FÍB

Landamerki er sögð skylda að hafa á bíl áður en haldið er með hann erlendis að því er fram kemur á vef Félags íslenskra bifreiðareigenda.

Það má vera rétt en fjölskylda ein sem Fararheill hafði spurnir af í vikunni varð illa úti í Hamborg fyrir skemmstu en þá var bifreið þeirra töluvert skemmd og á húddið skrifuð ókvæðisorð um Ísrael og gyðinga.

Töluvert fer fyrir andúð og gagnrýni á Ísrael og gyðinga um leið víða í borgum Evrópu vegna ástandsins fyrir botni Miðjarðarhafs en margir telja þar Ísraelsmenn fara fram af miklu offorsi og er nú rannsakað af hálfu Sameinuðu þjóðanna hvort Ísraelsmenn hafi gerst sekir um stríðsglæpi með árásum sínum á Gaza að undanförnu.

Það virðist eina hugsanlega ástæða þess að óprúttnir aðilar í Hamborg skemmdu bifreið Íslendingsins en létu aðrar bifreiðar í sömu götu í friði. Umræddur aðili er með IS límmiða á áberandi stað aftan á bílnum.

Sé það rétt er óþarfi kannski að finna merkinu stað á mjög áberandi hluta bíls ef þörf er á að leggja honum í miðborgum Evrópu þessi dægrin.