Bresk stjórnvöld hafa snarhækkað viðbúnaðarstig sitt vegna hugsanlegra hryðjuverkaárása. Þar sem hryðjuverkamenn reyna oftast að sprengja sem flesta á sem þekktustum stöðum er kannski óvitlaust að bíða aðeins með Englandsferðina.

Dúllerí í London á næstunni gæti endað illa. Mynd Angelo Amboldi

Dúllerí í London á næstunni gæti endað illa. Mynd Angelo Amboldi

Þeir kalla það „Severe“ viðvörun í heimalandinu sem útleggst sem sterkar líkur á árás á næstunni. Sem kemur ekki á óvart miðað við hvað Bretar eru alltaf viljugir að troða öðrum þjóðum um tær.

En það setur kannski blett á rómantíska ferð til London að vita af slíkri hættu. Óspennandi að enda rómantíska kvöldið á slysó eða einhvers staðar þaðan af verra.