Lítið hefur farið fyrir svokölluðum hraðtilboðum Icelandair síðustu misserin eins og Fararheill hefur ritað um áður. Það er enn einn mínusinn við miklar vinsældir Íslandsferða útlendinga að sértilboð til handa okkur sem haldið hafa flugfélaginu á flugi gegnum þykkt og þunnt gegnum árin eru sjaldgæfari en geirfuglinn.

Efast má um að flug sem kostar næstum 80 þúsund krónur geti flokkast sem sérstakt „tilboð“ að mati Fararheill.

Efast má um að flug sem kostar næstum 80 þúsund krónur geti flokkast sem sérstakt „tilboð“ að mati Fararheill.

Í dag brá þó svo við að flugfélagið auglýsti ný hraðtilboð og þó finna megi þar flugfargjöld á temmilegu verði er engin ástæða til að blása blöðrur og opna kampavín. Helst má til nefna að komist er til Parísar frá október og fram í miðjan desember fyrir 16.900 aðra leið og þar með talinn farangur eins og alltaf. Sömuleiðis geta knattspyrnuaðdáendur notið flugs til Manchester yfir sama tímabil niður í 14.900 krónur aðra leið.

En mun meiri athygli vakti það sem kannski er dýrasta hraðtilboð sem Icelandair hefur boðið upp á lengi vel og kannski það allra dýrasta. Umrætt hraðtilboð gildir um ferðir til og frá Edmonton í Kanada frá miðjum október og fram í desember. „Tilboðið“ báðar leiðir kostar litlar 76.100 krónur!

Fyrir þá upphæð má njóta viku í sól og þokkalegri sælu í Portúgal, Marokkó og Grikklandi í nóvember í stað þess að frjósa til helvítis í núll gráðum í Edmonton.

hrad33