Fjöldi þeirra Íslendinga sem heillast af Kúbu er merkilega mikill og góðu heilli eru stöku ferðir þangað til lands farnar að skjóta upp kollinum á nýjan leik eftir að hafa horfið algjörlega við hrunið.

Sólsetur á Varadero á Kúbu en þangað finnst mörgum yndislegt að koma aftur og aftur og aftur og aftur. Mynd Emmanuel Huybrechts

Sólsetur á Varadero á Kúbu en þangað finnst mörgum yndislegt að koma aftur og aftur og aftur og aftur. Mynd Emmanuel Huybrechts

Fararheill hefur nýlega fjallað um stuttar og tiltölulega dýrar ferðir tveggja aðila til eyjarinnar heitu en fleiri eru um hituna. Heimsferðir selja líka Kúbuferð og sú langt með að verða uppseld nú þegar. Það er tíu nátta dvöl í nóvember og kostnaðurinn á par 749.600 krónur.

Það sem allar ferðir innlendra ferðaskrifstofa eiga sameiginlegt er tvennt. Himinhátt verð og þær eru allar í boði meðan á fellibyljatímabilið á Karíbahafi stendur yfir en því lýkur yfirleitt um miðjan nóvember. Hvers vegna að taka sénsinn á því?

Væri ekki nær að fara kannski aðeins seinna og spara fúlgur fjár í leiðinni?

Það er hægt hlaupi fólki til og kaupi ferð sem breska ferðaskrifstofan Holiday Place er nú að bjóða. Þar er tíu nátta dvöl í boði frá september og fram til apríl á næsta ári á einu verðlaunaðasta hóteli Varadero allt niður í 150 þúsund krónur á mann. Sem merkir að kaupi fólk einnig lægstu fargjöld út til Bretlands hjá Wow Air eða easyJet og það með tösku fæst Kúbuferðin kringum 180 þúsund krónur plús mögulega gisting eina nótt í London.

Gangi slíkt eftir, sem ætti að gerast vandræðalaust, fæst sams konar Kúbuferð og Heimsferðir bjóða á 750 þúsund krónur á parið niður í 360 þúsund krónur. Verðmunurinn litlar 400 þúsund krónur. Enginn er fararstjórinn en að öðru leyti keimlíkar ferðir en í ferð Heimsferða er einnig dvalið eina nótt í Englandi á útleið.

En kannski eru fjögur hundruð þúsund krónur peningur sem þig munar ekkert um…