Yfirleitt kostar engin ósköp að leigja bílaleigubíl vestur í Bandaríkjunum. Þar er eðlilegt að leigja sæmilegustu bifreið hjá bílaleigum fyrir tvö til fjögur þúsund krónur per dag að jafnaði en þar skiptir máli hvort leigt er á flugvelli eða annars staðar.

Tíu prósent eru tíu prósent.

Tíu prósent eru tíu prósent.

En jafnvel þó leiguverð fari ekki með fjárhaginn er aldrei verra að borga minna en meira. Það er hægt þessa stundina sé fólk á faraldsfæti í Orlando eða annars staðar í Flórída næstu tvo til þrjá mánuðina. Og hver er það ekki enda ekkert hægt að fara um héraðið bíllaus.

Bílaleigan Sixt er nefninlega að bjóða tíu prósenta afslátt af hefðbundnu leiguverði sínu sem er álíka lágt og hjá stórum samkeppnisaðilum. Þó ekki séu tíu prósent nein ósköp þá telur þegar saman kemur og auðvitað er afslátturinn feitari því dýrari bíl fólk velur undir sig.

Sakar ekki að grípa þær gæsir sem gefast og eiga örlítið meira aflögu en ella. Tilboð Sixt hér.