Fararheill minnist þess ekki að hafa séð tilkynningu þess efnis að íburðarmesta og dýrasta skipulagða ferð sem í boði hefur verið hérlendis frá Hruni hafi verið felld niður. Sú finnst þó ekki lengur á vef fyrirtækisins Úrval Útsýn.

Glæsileg lúxusferð virðist ekki hafa hlotið náð fyrir tilteknum fjölda milljónamæringa á Íslandinu. skjáskot
Þar var um sanna 28 daga lúxusferð að ræða þar sem Guðrún Bergmann hugðist leiða fólk um troðnar slóðir í Dúbai, Ástralíu og Nýja-Sjálandi og ekkert til sparað. Ekki slæm ferð per se en verðið út í Hróa hött og Rauðhettu líka eða 3.6 milljónir króna á parið.
Við gagnrýndum verðlagið á þessari ferð fyrr í sumar eins og sjá má hér en aðeins fimmtán manns þurfti til að ferðin kæmist á koppinn. Þar sem umrædd ferð finnst ekki lengur í boði á vef Úrval Útsýn má gera ráð fyrir að tiltekinn fjöldi fólks hafi ekki náðst að þessu sinni.
Kemur kannski næst.







