Kannski landinn sé að læra eitthvað. Í öllu falli virðist afar takmarkaður áhugi á þriggja milljóna króna ferð Úrval Útsýn til Ástralíu, Nýja-Sjálands og Dubai næsta vetur.
Ferðin atarna er sú dýrasta sem við hjá Fararheill höfum rekist á eftir Hrunið 2008 en hún kostar tæplega 1,8 milljón á einstakling og rétt tæpar þrjár milljónir á hjón eða par.
Úrval Útsýn er enn og aftur að vekja athygli á ferðinni og mun aftur halda kynningarfund handa áhugasömum nú síðar í vikunni. Það er annar kynningarfundurinn sem haldinn er fyrir utan auglýsingar í blöðum og á netinu. Það sem vekur athygli er sú staðreynd að lágmarksþátttaka er fimmtán manns. Augljóslega hefur sá fjöldi ekki náðst ennþá.
Fyrir okkur hin sem blöskrar verðlag á ferðinni en dauðlangar að sjá og skoða Nýja-Sjáland og Ástralíu eru allmargir betri kostir í boði. Ein sem okkur hjá Fararheill finnst mætagóð er þessi tveggja landa ferð Trafalgar ferðaskrifstofunnar. Þar er flakkað um bæði lönd í 19 daga og miðast verð við brottför frá Bandaríkjunum. Prísinn? 606 þúsund krónur á mann plús flug til Bandaríkjanna og heim aftur.
Segjum 700 þúsund krónur með fluginu á mann sinnum tveir sem vitaskuld gera 1,4 milljón króna. Svo má eyða 400 þúsund krónum í aðra ferð að skoða Dubai í rólegheitum ellegar gefa Barnaspítala Hringsins og samt sleppa með lægri upphæð en einn einstaklingur þarf að greiða fyrir ferð Úrval Útsýn.








