Ferðaskrifstofan Kuoni er ein fárra sem enst hafa í bransanum um langa hríð sem er nokkuð trygg ávísun á gott ferðalag ár eftir ár. Nú er útibú þeirra í Bretlandi að slá 30 prósent af mörgum æði safaríkum ferðum fram eftir þessu ári.

Lúxus á fjarlægum eyjum með duglegum afslætti með Kuoni. skjáskot

Lúxus á fjarlægum eyjum með duglegum afslætti með Kuoni. skjáskot

Miðað við það sem gerist hjá þeim ferðaskrifstofum sem bjóða þessar klassísku Benídorm ferðir er 30 prósenta afsláttur engin ósköp. Oft er slegið meira af en það sé sala á ferðum dræm. En ferðir Kuoni eru allajafna ekki til Benídorm og alla jafna ekki mjög ódýrar.

Þess vegna er 30 prósenta afsláttur hjá þeim ríkulegri en hjá mörgum öðrum og eins og sjá má á nokkrum tilboðum þeirra kannski munurinn á að tíma að fara í ferð og ekki. Þarna má finna viku í lúxus á Maldives-eyjum niður í 250 þúsund og lúxuspakka til Máritíus í viku niður í 200 þúsund krónur. Báðir staðir í lúxusflokki sem skýrir tiltölulega hátt verð.

Sakar ekki að skoða það sem í boði er en bóka þarf eigi síðar en 15. júlí.

Tilboðssíða Kuoni í Bretlandi hér.