Minnst fjórum sinnum frá því um síðustu áramót hefur Fararheill gert verðkönnun á flugi aðra leiðina héðan til Barcelona á Spáni og í öll skiptin reyndist hið spænska lággjaldaflugfélag Vueling hafa vinninginn. En nú skýtur Wow Air þá spænsku á bólakaf með einhverju besta flugtilboði sem hið íslenska flugfélag hefur boðið.
Wow er að bjóða á tilteknum dagsetningum næstu vikurnar og mánuði flug aðra leið til Barcelona allt niður í 13.895 krónur með sköttum og gjöldum en engum farangri. Og við höfum sannreynt að þetta verð finnst á allnokkrum dagsetningum þegar þetta er skrifað.
Ekki aðeins er þetta eitthvað það lægsta verð á ferð til Barcelona sem sést hefur um áraraðir heldur líka um 20 þúsund krónum lægra verð en Wow Air hefur verið að bjóða að meðaltali síðustu mánuði. Og sjö þúsund krónum lægra en meðalverð hjá spænska samkeppnisaðilanum var í byrjun mánaðarins.
Súrt að sjálfsögðu fyrir alla þá sem ætluðu sér að vera forsjálir með flugmiðakaupin en jákvætt fyrir alla aðra.
Um að gera að versla við Wow og styrkja þá í samkeppninni fyrst fyrirtækið er loks farið að bjóða í takt við önnur lággjaldaflugfélög heims. Næsta skref að tryggja sér lægsta verð á bestu hótelum í borginni og svo mála Barcelona rauða.








