Velflest þekkjum við hinn stórkostlega turn Eiffel í París. Þar ávallt gott að koma hvort sem er til að slaka á kringum fólk eða skoða útsýnið úr turninum enn einu sinni. En það er ekki oft sem við sjáum þarna TVO Eiffel turna.
Reyndar er rangt að segja að um tvo Eiffel turna sé að ræða þó líkir séu því sá nýrri sem þarna er verið að byggja og skal vígja með pompi og prakt þann 7. júlí ekki aðeins mun minni en fyrirmyndin heldur og byggður úr stólum!
Þetta er ekkert grín. Það er raunverulega verið að byggja nákvæma eftirlíkingu af Eiffel turni úr stólum. Nánar tiltekið hinum velþekktu Fermob stólum sem finna mátt hefur á frönskum kaffihúsum og víðar en það um áratugaskeið.
Vígsla fer fram þann sjöunda júlí en ástæða þessa bralls er sú að stóllinn sá verður 125 ára gamall á þeim degi.
Stóllinn frægi er ekki sá eini sem á 125 ára afmæli þetta árið. Eiffel turninn sjálfur náði þeim áfanga í mars síðastliðnum.
Óvitlaust að gera sér aukaferð þann 7. júlí finni fólk sig í París því meira húllumhæ verður í gangi en einungis vígslan.








