Sitt sýnist hverjum um hvað flokkast gæti sem draumaferðin erlendis en ef vikulöng sigling niður Níl í Egyptalandi auk fjögurra daga á topphóteli við Rauðahafið á tombóluverði freistar ekki einhverra má öll ritstjórn Fararheill hundur heita.

Rómantískt og ljúft í meira lagi. Sigling um Níl er engu minni klassík en þær fornminjar sem finnast á bökkum Nílar. Mynd Ian Haskins

Rómantískt og ljúft í meira lagi. Sigling um Níl er engu minni klassík en þær fornminjar sem finnast á bökkum Nílar. Mynd Ian Haskins

Slíka unaðsferð er breska ferðaskrifstofan Travelwasp nú að bjóða frá Gatwick í London og hætt við að vatn komi í munn við að lesa ferðalýsinguna.

Fyrst er flogið til Hurghada við strönd Rauðahafsins þar sem gist er með öllu inniföldu á fjögurra stjörnu hóteli. Þar gist tvær nætur og kroppurinn tanaður í drasl eins og sumir myndu segja. Að þeim tíma liðnum er fólki ekið sem leið liggur til Luxor þar sem fleyið bíður klárt í sjö daga indæla ferð niður hina mögnuðu Níl. Fyrir utan hversu ljúft er að sigla niður fallega á í vellystingum þarf varla að fara mörgum orðum um þær ómetanlegu fornminjar sem meðfram Níl finnast. Stoppað er á öllum helstu stöðum og færi gefst að skoða fyrir þá sem það kjósa. Að sjö dögum liðnum er stefnan svo aftur tekin til Hurghada þar sem fólk getur á ný notið lífsins í tvær nætur áður en pakka þarf niður fyrir heimferðina.

Þetta hljómar afar vel ekki satt?  Og hljómar sennilega betur þegar haft er í huga að ferðin er í boði á tombóluverði og á ágætum tíma frá byrjun september og fram í miðjan október. Og hvað kosta herlegheitin svo? Hvernig hljóma 106 þúsund krónur á mann miðað við tvo!

Flogið er frá Gatwick og þangað fljúga bæði Icelandair og Wow Air. Það síðarnefnda að bjóða fína díla þessi dægrin og komist til London kringum tíu þúsund eða svo. Með slíku fyrirkomulagi er hægt að njóta Egyptalands vandræðalaust og lengja sumarið verulega án þess að eyða of miklu af takmörkuðu fjármagni.

Ferðin hér í smáatriðum.